Ja, nú má Spánn fara að var sig. Eftir miklar þrautir er spænska debetkortið mitt á ný fullt af Evrum og ég finn hvernig fyrri loforð um að byrja nú að sýna aðhaldssemi, sem ég sór hátíðlega eftir að hafa eytt öllum Erasmusstyrknum á einum mánuði, gufa nú upp eins og dögg fyrir sólu. Mín bíður næturrúta til Sevilla. Í tilefni af þessum frábæra fimmtudegi hef ég leyft mér þann munað að kaupa mér tveggja evru pakka af hakki. Endurnærð af safaríku dýraholdi mun ég takast á við rútustöðvar Madridar í nótt. Ég óska sjálfri mér góðrar ferðar.
The expectorator
Þetta er sorprit, það eitt er víst.

1 Comments:
Hvílík ævintýri! Og þá á ég bæði við hakkið og næturrútuna til Sevilla!
Sendu inn athugasemd
<< Home