þriðjudagur, febrúar 24, 2009

Í dag þurfti ég að sitja löngum stundum fyrir framan tölvuna og það endaði auðvitað með því að ég gúglaði sjálfa mig. Þetta geri ég öðru hvoru án þess þó að búast við að finna eitthvað sem ég vissi ekki fyrir. Þeim mun meiri varð því undrun mín þegar ég í dag komst að því að ég er Grænlendingur. Ég fann sumsé mynd af mér, merkta með fullu nafni inn á umræðuvefnum Skadi Forum sem sett var þar inn fyrir rúmum þremur árum. Í skyndi reddaði ég mér því notendanafni á Skadi Forum en ákvað að gera það undir fölsku nafni til að vekja ekki grunsemdir hjá Nseag þessum sem hafði sett inn færsluna um mig.
Eftir að hafa svipast um á síðunni og skoðað færslu Nseags gat ég ekki annað en hrósað happi yfir þeirri forsjálni minni. Þetta virðist mér vera síða þar sem einmana fólk víðsvegar um heiminn fær útrás fyrir sinn innri Germana og, um leið, sinn innri rasista. Myndin af mér, sem var gamla busamyndin mín úr MR, hafði verið sett inn á umræðuvef um kynþáttagreiningu (anthropological taxonomy) sem bar nafnið "Classify Icelandic Mongolized (eskimo mix)" en þetta virðist vera einhverskonar samkvæmisleikur á borð við Pictionary. Þar fékk busamyndin mín einkunnina: Brunn+Eskimo en til gamans má geta að busamynd Dags Snæs Sævarssonar fékk dóminn: Nordid+Brunn+slight mongolized.
Jahá. Ég veit ekki alveg hvort ég ætti að láta móðgast eða ekki, þegar svo mjög er vegið að stolti mínu, þjóðerni og kynþætti og ég sökuð um grænlenskan uppruna. Í það minnsta get ég sofið róleg, ég gat ekki séð að þau hefðu vitneskju um heimilisfangið mitt og því þarf ég ekki að óttast að ég verði leituð uppi og mér fórnað á altari þjóðernishreinsana, blendingur sem ég er.

5 Comments:

At 9:22 AM, Blogger Þorsteinn said...

Hefði ég sjálfur lent í þessu, hefði ég misst vitið, ráðist á næsta hvíta mann og sakað um stríðsglæpi

en ég er reyndar fökkd öpp.

 
At 10:31 AM, Blogger Hulda Barcelonabúi said...

Hefurðu bent Degi á þessa skemmtilegu síðu?

 
At 5:32 AM, Blogger Ragnhildur said...

Nei, ekki enn, en ég ætti kannski að hringja í hann? Hæ Dagur, þetta er Ragnhildur sem var með þér í MR, við höfum aldrei talast við en vissirðu að þú hefur verið flokkaður sem slightly mongolized?
...

 
At 1:53 AM, Blogger klaraarnalds said...

hahaha! Eitt símtal sem hann á ekki von á í amstri dagsins!

 
At 4:13 PM, Anonymous Saga said...

Hahahahaha! Þetta er það fyndnasta sem ég hef lesið! Um ævina!

 

Sendu inn athugasemd

<< Home