Ég er byrjud ad fylgjast med fréttum hérna í Perú. Tad týdir ad tegar ég geng framhjá bladastandinum á leidinni í skólann tá les ég fyrirsagnirnar á forsídufréttunum. Og tetta er tad sem hefur gerst undanfarid í Perú:
22 létust í rútuslysi (og vid hlidina á tessari fyrirsogn var mynd af skaelbrosandi bimbói í g-streng)
42 nemendur EKKI reknir fyrir ad eydileggja teppi og fleygja sjónvarpi.
Sjávarstraumurinn La niña nálgast.
Prestur á daginn, Elvis Presley á kvoldin - fadir Antonio segir okkur frá ástrídu sinni fyrir rokki.
Fyrrverandi forseti Perú, Alejandro Toledo, fullur í opinberri heimsókn í Chile. Tvílík skomm!
Og sídast en ekki síst: Ímynd Krists birtist á burdarsúlu á flugvellinum í Cusco, á umrádasvaedi AeroCondor.
Tetta med Krist tykir mér merkilegast. Eftir tví sem ég skil best tá var eitthvad ad hjá flugvél frá Aero Condor, svo hún turfti ad hringsóla í trjá klukkutíma yfir Cusco til ad klára bensínid, annars hefdi kviknad í henni vid lendingu, eda eitthvad slíkt. Tegar flugvélin hafdi svo loksins lent áfallalaust kom fólk auga á andlit Krists, svipad andliti sem ádur hefur birst hér á fjalli sem heitir Huanco. Nú stendur yfir rannsókn á andlitinu, hvort tad sé ekta eda ekki. Ef tad reynist ekta tá verdur tetta heilagur flugvollur og Cusco verdur enn fraegari, heilog flugvallarborg.

4 Comments:
Vá hvað fréttirnar eru spennandi hjá þér! Hér er ekkert nema ,,Íbúðaverð hefur hækkað" og ,,Tölvuleikurinn Zelda fagnar 20 ára afmæli sínu" og annað í þeim dúr.. Ekki beint spennandi...
Ekki jafn spennandi og hér á Íslandi. Hér eru forsíðfréttirnar svona:
,,Launafólk fái stærri hlutdeild í aukningu þjóðarverðmæta"
,,Lagður hornsteinn að stórheimili fyrir aldraða" og
,,Eldsneytisverð hækkar".
Þess má geta að þetta var í alvörunni í morgunblaðinu: ,,Öryrkjar sjálfum sér verstir"
HÆ :) hey við fengum póstkortið frá þér! Ég hló dátt við lestur þess :) Annars er ekkert að gerast hjá okkur, allt bara við það sama í bakaríinu og svo er ég bara að reyna að lufsast í skólanum líka... en já..er alltaf að kíkja hingað og tékka á þér ;)
Bimbóið góða brosir í gegn um súrt og sætt. Enda í g-streng.
Hinn gleðilegasti klæðnaður.
Sendu inn athugasemd
<< Home